,,Ísland í bítið" hættir í sjónvarpi eftir að
föstudagsþættinum lýkur. Þetta á eftir að koma óþægilega við marga.
Því við erum flest vanaföst á morgnana. Aldrei er líf manns eins
vanabundið og á morgnana þegar haldið er út í daginn. Og fjölmargir
hafa vanist því að koma sér af stað með sjónvarpinu, morgunkaffi,
blöðin, fréttir og spjall í sjónvarpinu. Það hefur líka verið
gífurlega gaman að taka þátt í þessu. Skemmtilegur vinnufélagi -
Heimir Karlsson - og margir fleiri dásamlegir félagar sem hafa
byrjað daginn snemma með manni undanfarna mánuði. En við eigum ekki
stöðina og þeir sem eiga peningana ráða. Það hefur því verið
ákveðið að spara, færa til fjármagn og breyta þættinum yfir í
,,Bítið á Bylgjunni" - enda mjög margir sem hlusta
á útvarpið í bílnum á leið til vinnu. Ég hef hins vegar áhyggjur af
þeim sem vinna heima, eru heima með börn, eru í vaktavinnu eða eru
bara hættir að vinna og finnst notalegt að hafa þennan félagskap
sem morgunsjónvarp er. Þeir munu vonandi sakna okkar þar til þeir
hafa vanist því að vakna með Bítinu á Bylgjunni.
Breytingar hafa hins vegar alltaf verið til góðs í mínu lífi. Og
það eru spennandi tímar framundan. Ég fæ fleiri skemmtileg tækifæri
á Stöð 2 - enda kraftmikill vinnustaður þar sem verkefnin eru næg.
Við Heimir verðum til að byrja með í Bítinu á Bylgjunni en með
hækkandi sól fer ég yfir í kvölddagskrá Stöðvar 2.
,,Örlagadagurinn" fer aftur í loftið á Stöð 2 í
vor. Ég hlakka til en það verður samt leitt að sjá á eftir góðum
félögum og vinnudegi sem er svona óvenjulegur - erfiður, en líka
skemmtilegur. Þá er bara að vona að manni takist að halda samt
áfram að vakna snemma! Ég treysti því á að Bítið á Bylgjunni
verði það skemmtilegur morgunþáttur að hann veki mann eins og
hressandi hanagal á morgnana þegar haldið er út í vinnu við
,,Örlagadaginn."
Allar ábendingar um góða viðmælendur eru vel þegnar. Ég er þegar
komin með lista yfir spennandi gesti í þáttinn. Lumar þú á góðum
ábendingum? Sendu mér línu.
Kveðja,
Sirrý